1 research outputs found

    "Maður fer ekki í maraþon án þess að hafa æft sig.": Innsýn á valgreinar á efsta stigi grunnskóla

    No full text
    Tilgangur þessarar rannsóknar er að skoða hvort markmiðum aðalnámskrár varðandi valgreinar á efsta stigi grunnskóla sé framfylgt. Kannað var hver upplifun og reynsla nemenda er af vali og valgreinum og sýn fagaðila í grunnskólum. Rannsóknin fór aðallega fram í fjórum unglingaskólum á höfuðborgarsvæðinu. Tekin voru einstaklings-viðtöl við nemendur og náms- og starfsráðgjafa auk rýnihópsviðtala við skólastjórn-endur og valgreinanefnd á Akureyri. Niðurstöður leiddu í ljós að valgreinar veita nemendum ánægju í skólanum þar sem val þeirra byggist af áhuga og framtíðar-áformum. Jafnframt öðlast þeir aukna sjálfsþekkingu með því að velja sér valgreinar og prófa sig áfram með fjölbreyttum námsgreinum, en í ljós kom að stórir unglingaskólar geta veitt nemendum gott framboð af valgreinum. Samkvæmt niðurstöðum eru ýmis sóknarfæri í valgreinum fyrir náms- og starfsráðgjafa sem og náms- og starfsfræðslu í ljósi þess að valgreinar eru að veita nemendum tækifæri til að læra ákvörðunartöku sem tengist mótun eigin náms- og starfsferils. Jafnframt eru nemendur að fá tækifæri til könnunar sem og undirbúnings fyrir nám á næsta skólastigi. Stjórnendur og yfirstjórn menntamála geta nýtt sér niðurstöður þessarar rannsóknar og notfært sér valgreinar samhliða náms- og starfsfræðslu til að ýta undir starfsferilsþróun nemenda.This study aims to examine whether secondary-schools conform to curricular policy of providing students with opportunities for elective courses. The study focuses mainly on students experience of class electives, but the view of administrators and career and guidance counsellors are also elicited. The study was mainly conducted in four large secondary schools for students 13-15 years old in the metropolitan area. Individual interviews with students and career and guidance counsellors were conducted as well as focus group interviews comprised of school administration professionals and a coordinating body overseen elective courses across schools in relatively large municipality. Results show that having choices made student more interested and satisfied in school and agentic because they are choosing both in line with their interests and future goals. At the same time, they gain greater self-knowledge by experimenting with a variety of subjects. The results indicate that large secondary schools for students 13-15 years old can provide students with good, many electives. Results show that electives provide numerous opportunities to career guidance, counselling, and education and, because it is their first educational choice and gives students the chance to learn career decision making. Furthermore, students have the opportunity to explore and prepare for future studies. The study has implications for School administration’s, policy makers and career and guidance counsellors who can use the results to develop practice by using electives in combination with careers education to further advance students career development
    corecore