3 research outputs found

    Skráning upplýsinga um tannheilsu í forvarnarskoðun tólf ára barna á Íslandi

    Get PDF
    Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/OpenMeð skráningu heilsufarsupplýsinga er fyrst og fremst verið að afla þekkingar um heilsufar og heilbrigðisþjónustu, meta árangur þjónustunnar, ásamt því að nota þær við gerð áætlana í heilbrigðisþjónustu og vísindarannsóknum. Nauðsynlegt er að leggja mat á hvort þróun tannheilbrigðismála hér á landi er í samræmi við alþjóðleg markmið og íslenska heilbrigðisáætlun. Aðgengi að tannheilsu- upplýsingum er því nauðsynlegt og lykilatriði að upplýsinganna sé aflað á samræmdan og vandaðan hátt, svo mark sé á þeim takandi

    Distribution between risk groups determined by severity of caries among 6, 12 and 15 year old Icelandic children participating in a national oral health survey 2005

    Get PDF
    Efst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinnInngangur: Landsrannsókn á tannheilsu 6, 12 og 15 ára barna (MUNNÍS) var framkvæmd árið 2005. Það sama ár gaf Embætti landlæknis(EL) út Klínískar leiðbeiningar um varnir gegn tannátu á Íslandi. Nýlega gerði Tannlæknafélag Íslands tillögu að áhættuflokkun og forgangsröðun íslenskra barna að tannlæknaþjónustu byggða á Klínískum leiðbeiningum Embættis landlæknis. Rannsakað var hvernig þátttakendur MUNNÍS rannsóknar dreifðust milli áhættuhópa Tannlæknafélags Íslands eftir alvarleika tannskemmda. Efniviður og aðferðir: Tannáta 6, 12 og 15 ára barna var greind eftir ICDAS greiningu á tannflöt (ds/DS1-6, ds/DS3-6). Skilgreind voru áhættuviðmið fyrir þrjá áhættuflokka TFÍ, sem taka mið af aldri einstaklinga, fjölda skemmdra tannflata og alvarleika tannskemmda (ds1-6/DS1-6). Mikil áhætta fyrir 6 ára ds(3-6 )4, DS(3-6)2, fyrir 12 ára DS(3-6)4 í sex ára jöxlum, DS (3-6)1 í framtönnum og fyrir 15 ára DS(3-6)8 í forjöxlum/jöxlum, DS(3-6)2 í framtönnum. Miðlungs áhætta fyrir 6 ára ds(1-6)4, DS(1-6)2, fyrir 12 ára DS(1-6)4 í sex ára jöxlum, DS(1-2)1 í framtönnum og fyrir 15ára DS(1-6)8 í forjöxlum/jöxlum, DS(1-6)2 í framtönnum. Aðrir voru flokkaðir í litla áhættu. Niðurstöður: Samkvæmt áhættuflokkun TFÍ eru 6,7% sex ára , 8,7% tólf ára og 9,8% fimmtán ára barna í mikilli áhættu. 24,9% sex ára, 36,3% tólf ára og 42,3% fimmtán ára barna í miðlungs áhættu og 68,4% sex ára barna, 55,0% tólf ára og 47,9% fimmtán ára barna í lítilli áhættu. Börn án tannátu í barna- og fullorðinstönnum [d(3-6) mf+D(3-6)MF=0/d(1-6)mf+D(1-6)MF=0] eru 56% /36% 6 ára barna, 28% /12% 12 ára barna og 19% /6% 15 ára barna. Ef börn í mikilli og miðlungs áhættu eru talin saman tilheyra um 32% sex ára, 45% tólf ára og 52% fimmtán ára áhættuhópi. Um helmingur íslenskra barna tilheyra áhættuhópi vegna tannátu samkvæmt áhættuflokkun TFÍ. ---------------------------------------------------------------------------The Icelandic Oral Health Survey of children, 6, 12 and 15 years old was undertaken in 2005 (MUNNÍS) the same year that the Directorate of Health issued evidence-based guidelines for preventive strategies against caries. The Icelandic Dental Association has proposed a risk assessment and priority schedule regarding dental treatment for children, based on guidelines from the Directorate of Health. The project examined how the participants of the 2005 survey were distributed between risk groups identified by the Icelandic Dental Association based on severity of caries

    Skráning upplýsinga um tannheilsu í forvarnarskoðun tólf ára barna á Íslandi

    No full text

    corecore