1 research outputs found

    Sjálfvirkni og gervigreind : tækifæri í íslensku atvinnulífi

    No full text
    Rannsókn þessi var gerð í þeim tilgangi að kanna tækifæri aukinnar notkunar á gervigreind í íslensku atvinnulífi. Könnun var lögð fyrir fyrirtæki úr hinum ýmsu atvinnugreinum landsins og var athugað hvort þau væru nú þegar að nýta sér gervigreind, annars vegar í hugbúnaði sem þau væru að þróa og/eða selja og hins vegar í eigin starfsemi. Einnig var kannað í hvaða atvinnugreinum helstu tækifærin liggja og hverjar framtíðarhorfur næstu ára eru í notkun háþróaðrar sjálfvirkni. Niðurstöðurnar sýndu að nokkur fyrirtæki á Íslandi eru nú þegar að nýta sér háþróaða sjálfvirkni sem gervigreind í starfsemi sinni en einnig eru einhver fyrirtæki að þróa og/eða selja hugbúnað sem byggir á þessari tækni. Framtíðarmöguleikar gervigreindar virðast nokkuð miklir og sáu þátttakendur tækifæri til notkunar sjálfvirkni bæði í starfi og einkalífi. Með rannsókninni kom í ljós að tækifæri til nýtingar gervigreindar og annarar sjálfvirkni finnst í flestum atvinnugreinum og Íslendingar virðast vera meðvitaðir um þá þróun sem er að eiga sér stað á þessu sviði
    corecore