1 research outputs found

    Skapandi hópverkefni vorið 2013 : fjármálalæsi og tilfinningalæsi - stuttmynd

    No full text
    Vorið 2013 luku 26 nemar í grunnskólakennarafræði skapandi hópverkefni til B.Ed.-prófs með áherslu á samvinnu og skapandi vinnubrögð. Hópurinn ákvað að fást við þverfaglegt nám og námsefni og læsi í víðum skilningi. Undirhópar skiluðu fimm verkefnum sem mynduðu sýningarheild á Menntavísindasviði 19. apríl 2013. Hverju verkefni fylgir skýrsla þar sem lýst er fræðagrunni og hvernig skapað var út frá honum. Skapandi hópverkefni er birt í heild sinni á http://skrif.hi.is/skapandihopverkefniBEd Okkar undirhópur nefndist leiklistarhópur en leiklist í kennslu er meðal skapandi kennsluaðferða í skólastarfi. Hún er í eðli sínu þverfagleg og byggir að hluta til á að hægt sé að kenna hinar ýmsu námsgreinar í gegnum leiklist. Við ákváðum að gera stuttmynd og nefnist hún Easy money. Myndin er hugsuð sem kveikja fyrir kennslu á unglingastigi, bæði fyrir kennara og nemendur. Þar vildum við sýna fram á hvernig skapandi kennsluhættir geta ýtt undir þekkingu nemenda, fjármálalæsi og tilfinningalæsi. Í skýrslunni er reynt að lýsa á hvaða fræðum við byggjum og hvernig við þræddum þau inn í handritið að stuttmyndinni. Einnig er sagt frá hugmyndavinnunni á bak við stuttmyndina og í fylgiskjölum eru ljósmyndir af ferlinu, sögurammi, handritið og kynningarefni
    corecore