1 research outputs found

    Viðurkennum það, enginn er eins, list- og verkgreinar skipta máli

    No full text
    Ágrip Í ritgerðinni verður leitast við að sýna fram á mikilvægi list- og verkgreina í grunnskólastarfi. Stuðst er við kenningar ýmissa fræðimanna, sérstaklega eru það þó hugmyndir tveggja fræðimanna sem verða til umfjöllunar, það eru þeir John Dewey og Howard Gardner. Jafnframt er greint frá niðurstöðum rannsóknar sem gefa vísbendingar um mikilvægi list- og verkgreina þegar horft er á atvinnumöguleika sem skapast með listskapandi greinum. Að lokum verður svo sagt frá lítilli rannsókn sem höfundur ritgerðarinnar framkvæmdi í tengslum við þessa ritgerð og fjallar um námsárangur, viðhorf og námsáhuga almennings til list- og verkgreina
    corecore