2 research outputs found

    Urbanize the Suburb

    Get PDF
    Iceland is an island located in the North Atlantic Ocean where the climate is cold and the weather can be unpredictable. The sun angle is low during winter, which gives minimum daylight. This darkness and strong winds affect the urban life in the capital city Reykjavík and controls how people commute and spend their free time. One of the main goals in the regional plan for the capital area is to stop urban sprawl, densify within the existing urban fabric and increase the use of public transit. The plan is to develop the City line, light rail transit, and strengthen centers in the suburbs next to the City line. This thesis deals with redeveloping a suburban center and design for urban life in the suburb together with a new public transit, playful public realm and solutions for cold climate. The design site is located in one of the first suburbs in Reykjavík and the aim of this thesis is to transform the site from being a car-based area in to a walkable and attractive well-connected suburban center and increase outdoor urban life all year around

    Reitarvegur í Stykkishólmi : Tillaga að blandaðri byggð á iðnaðarsvæði með sterkum staðaranda og vistvænum áherslum

    No full text
    Sjálfbærni og vistvænar áherslur í skipulagi er ekki lengur val, heldur almenn krafa. Mikil umhverfisvakning hefur átt sér stað í Stykkishólmi undanfarin ár og vaxandi áhersla er á sjálfbærni hjá sveitarfélaginu. Þess vegna liggur það í augum uppi miðað við áherslur sveitarfélagsins að krafa er um vistvænar lausnir í Stykkishólmi og nauðsynlegt að bæta byggðina með tilliti til náttúruauðlinda og umhverfisáhrifa. Reitarvegur er iðnaðarsvæði í Stykkishólmi. Svæðið liggur meðfram sjávarsíðunni, í fallegu umhverfi og með útsýni yfir Breiðafjörð. Ákveðinn andi býr yfir svæðinu sem tengist sögunni, iðnaðinum og umhverfinu. Þarna er kjörið tækifæri fyrir þéttingu byggðar og betri landnýtingu. En hver er hentugasta leiðin að þessum markmiðum? Höfundur telur bestu lausnina vera blandaða byggð á Reitarvegi með vistvænum lausnum til þess að koma til móts við áherslur sveitarfélagsins á sjálfbærni og styrkja þá sérstöðu bæjarins. En einnig þarf að taka tillit til sögu svæðisins, starfseminnar og finna út hver sérkenni svæðisins eru sem þarf að halda í og styrkja. En hvað er vistvæn íbúðarbyggð? Hvernig má bæta iðnaðarsvæði svo að úr verði blönduð byggð með vistvænum áherslum? Hvernig má styrkja sögu, karakter og landfræðileg sérkenni svæðisins? Meginmarkmið verkefnisins er að sýna fram á að hægt sé að endurskilgreina og betrumbæta iðnaðarsvæði svo að úr verði blönduð byggð. Það skal gert með sjálfbærum og vistvænum áherslum sem og halda í og styrkja sögu, karakter og landfræðileg sérkenni Reitarvegs. Til þess að svara ofangreindum spurningum og ná fram meginmarkmiðunum verður verkefnið byggt á gátlista úr bókinni Shaping Neighbourhoods for Local Health and Global Sustainability og er hann heimfærður og aðlagaður að þessu verkefni. Fyrst er farið í ítarlega greiningarvinnu á svæðinu og hönnunin svo útfærð út frá niðurstöðum greininganna og vistvænum viðmiðum. Ný hönnunartillaga færir okkur blandaða byggð á Reitarvegi þar sem lagt er upp með að samtvinna iðnað og almenning með áherslu á vistvænar lausnir. Svæðið leggur mikið upp úr almenningsnotkun og ný fjölbreytt starfsemi laðar að sér heimamenn sem og ferðamenn. Reynt er að ná fram sterkum staðaranda og sérkenni svæðisins styrkt á ýmsan hátt. Hönnunartillagan er sett fram í máli og myndum
    corecore