Jaðarhópar á vinnumarkaði

Abstract

Markmið þessara BS ritgerðar er að bera saman jaðarhópa á vinnumarkaði, atvinnuleysisbótaþegar og fólk á lágmarkslaunum. Í kjölfar bankahrunsins 2008 jókst atvinnuleysi gríðarlega á Íslandi eftir að hafa verið tiltölulega stöðugt árin á undan. Rannsóknin tekur til þriggja aðstæðna, barnlaus og einhleypur einstaklingur, einstætt foreldri með tvö börn og einstakling í hjónabandi með þrjú börn. Ráðstöfunartekjur þessara þriggja aðstæðna voru reiknaðar fyrir bæði lágmarkslaunaaðila og aðila sem þiggur atvinnuleysisbætur. Í þeim útreikningu var tekið tillit til allra styrkja og bóta sem atvinnulausir og lágmarkslaunafólk getur fengið frá sveitarfélagi og ríki. Tilgáta rannsakenda var sú að ráðstöfunartekjur einstaklinga á vinnumarkaði væru hærri heldur en einstaklings sem þiggur bætur frá atvinnutryggingasjóði. Helstu niðurstöður benda til að einstaklingur á atvinnuleysisbótum hefur á bilinu 2,44% til 8,68% hærri ráðstöfunartekjur heldur en einstaklingur í lágmarkslaunastarfi

    Similar works

    Full text

    thumbnail-image

    Available Versions