Kynningarmál ferðaþjónustufyrirtækja í Eyjafirði : menning og ímynd

Abstract

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á AkureyriMarkmiðið með þessu verkefni er að kanna hvernig ferðaþjónustufyrirtæki Eyjafjarðarsvæðinu eru að koma sér á framfæri og hvort þau eru að kynna menningu og ímynd svæðisins. Þar sem ferðaþjónustufyrirtæki í Eyjafirði eru jafn misjöfn eins og þau eru mörg þá var búist við því að misjafnlega væri að kynningarmálum staðið. Farið var í ítarlega greiningu á svæðinu í heild svo sem SVÓT – greiningu og einnig var farið í að skoða fyrirtæki í ferðaþjónustu. Aflað var heimilda og mat lagt á efnið og komist var að eftirfarandi niðurstöðu: Kynningarmál eru mjög misjöfn, það fer eftir stærð og umfangi fyrirtækis hversu mikið er lagt í markaðsstarfið. Eftir því sem fyrirtækin eru smærri er minna lagt í kynningarmál og sum þeirra láta jafnvel nægja að nota bækling og smáauglýsingu í símaskránni. Aftur á móti eru stærri fyrirtæki að gera meira í markaðssetningu hjá sér og taka sig jafnvel nokkur saman til að ná til stærri markhóps. Stærri fyrirtæki eru með fastmótaðri kynningaráætlun en þau minni. Að mati forsvarsmanna þeirra fyrirtækja sem talað var við, kom sterklega í ljós munur á stærri og minni fyrirtækjum í sambandi við hvort auglýsingar skili árangri. Stærri fyrirtæki sem leggja meira í auglýsingar og kynningarmál telja að auglýsingar skili þeim árangri sem leitað er eftir en smærri fyrirtækin telja að auglýsingar skili litlum eða engum árangri það sé nóg að vera í einhverjum bæklingum og í símaskránni. Milli stærðin vildi meina að halda úti góðri heimasíðu væri það sem skilaði mestum árangri. Fyrirtæki eru ekki að koma menningu og ímynd svæðisins á framfæri nema það tengist beint þeirra rekstri, þó er undantekning þegar fyrirtæki taka sig saman í kynningarmálum þá er vísir að því að menningu og ímynd séu gerð skil. Lykilorð: • Eyjafjörður. • Ferðaþjónusta. • Kynningarmál. • Menning. • Ímynd

    Similar works

    Full text

    thumbnail-image

    Available Versions