Stærðfræði er leikur : stærðfræðinám í náttúrunni og umhverfi leikskólans

Abstract

Lokaverkefni þetta er samsett af greinargerð og verkefnahandbók. Þetta er lokaverkefni til B.Ed. prófs í Leikskólakennarafræðum við Háskóla Íslands vorið 2011. Fræðileg umfjöllun í greinagerðinni er byggð á kenningum Lee Vygotsky, Jean Piaget og John Dewey. Börn læra af umhverfi sínu með því að taka þátt í þeim verkefnum sem eru fyrir hendi hverju sinni. Í daglegu lífi má sjá og upplifa hinar ýmsu birtingamyndir stærðfræðinnar. Stærðfræði er ekki bara tölur á blaði og ekki einungis lærð innan dyra. Því er gott að nýta tækifærið og færa stærðfræðinámið út í umhverfið og læra um leið á nánasta umhverfi leikskólans og kenna börnum að ganga um náttúruna. Í ljósi þess að börn hreyfa sig æ minna er einnig tilvalið að tengja stærðfræðina við útikennslu og hreyfingu um leið. Þá upplifa börnin skemmtilega hreyfingu og óbeina stærðfræðikennslu. Í þessu verkefni er leitast við að setja fram hugmyndir að úti verkefnum og leikjum sem tengjast stærðfræðinni við mismunandi árstíðir

    Similar works

    Full text

    thumbnail-image

    Available Versions