Fyrirtæki og skattar

Abstract

Markmið þessa verkefnis er að kanna þau mál er snúa að skattskyldu og ábyrgð fyrirtækja, fjalla um félagaformin sjálf, skipulag þeirra, skattskyldu og úrræði á því sviði, hvers lags rekstri hentar hvaða félagaformi, svo og hvaða orsakir nýlegar skattabreytingar hafa haft í för með sér. Mikið rót hefur verið á lögum og reglugerðum er varðar umgjörð fyrirtækja og skattamál þeirra undanfarin ár. Er það notaður sem ákveðin útgangspunktur til þess að komast því hvaða áhrif þær hafa á hegðun fyrirtækja og stjórnenda þeirra. Helstu heimildir eru fengnar úr hinum ýmsu fræðiritum er snúa að félagarétti, Hagstofu Íslands og erlendum fræðigreinum. Niðurstaða verkefnisins var á þá vegu að nýlegar lagasetningar sem þó nokkrum hefur verið breytt aftur til betri vegar hafi hamlandi áhrif á fyrirtæki. Þau leiddu meðal annars til þess að aðilar hófu í meira mæli að nýta sér samlagsfélagsformið utan um rekstur sinn. Þá fjalla höfundar einnig um leiðir er stjórnendum fyrirtækja standa til boða er varðar skipulag í skattamálum sem gætu nýst mörgum fyrirtækjum til góða

    Similar works

    Full text

    thumbnail-image

    Available Versions