Listir og sjálfbærni : áhrifamáttur sjónlista í menntun til sjálfbærni

Abstract

Menntun til sjálfbærni er skilgreind út frá gagnrýnni og skapandi hugsun. Í þessari grein er fjallað um hvernig myndmenntakennarar og listamenn geta með störfum sínum stuðlað að menntun til sjálfbærni. Í því ljósi er fjallað um myndmennt og vinnuferli listamanna sem tengja má viðfangsefninu. Nokkur listaverk eru rædd í tengslum við sjálfbærni og hverju þau geta skilað þegar unnið er markvisst með nemendum að því að skynja, greina og meta myndlist. Rætt er um hvernig slík vinna getur lagt grunn að persónulegu gildismati sem byggir á sjálfbærri og skapandi hugsun. Umfjöllunin er útskýrð með dæmum úr námskeiðinu Listir og sjálfbærni sem höfundur kennir í Listaháskólanum. Markmið námskeiðsins er að veita nemendum staðgóða menntun í málefnum sem tengjast sjálfbærri þróun svo þeim verði eðlislægt að laga efnið að inntaki kennslunnar

    Similar works

    Full text

    thumbnail-image

    Available Versions