To access publisher's full text version of this article, please click on the hyperlink in Additional Links field or click on the hyperlink at the top of the page marked DownloadTilgangur: Þegar ungt fólk byrjar í framhaldsskóla er það líklegra til
að stunda áhættuhegðun, eins og að neyta áfengis, heldur en þeir sem
yngri eru. Tilgangurinn með því að þróa þetta skimunartæki er að
meta á heildrænan hátt heilbrigði ungs fólks ásamt undirliggjandi
áhættuþáttum, áhættuhegðun og verndandi þáttum. Tækið er ætlað
skólahjúkrunarfræðingum í framhaldsskólum.
Aðferð: Þróun skimunartækisins hEiLung byggðist á kenningu um
seiglu, fræðilegri úttekt á rannsóknum um heilbrigði unglinga og ungs
fólks og skoðun á matstækjum og skimunartækjum sem notuð hafa
verið til að meta heilbrigði (áhættuhegðun, áhættuþætti og verndandi
þætti) ungs fólks. Á undirbúningsstigi voru spurningar metnar af
fjórum sérfræðingum og var það auk þess lagt fyrir sex ungmenni.
Niðurstöður: Þegar undirbúningsvinna hEiLung var komin á lokastig
innihélt það 34 spurningar. Spurningarnar komu inn á andlega,
líkamlega, félagslega og kynferðislega þætti voru en einnig um lífsstíl
ungs fólks og gefa þannig heildræna sýn á heilbrigði þess. Það tekur
2–4 mínútur að svara spurningunum. Skimunartækið var byggt upp
þannig að fyrst komu spurningar um verndandi þætti, því næst fylgdu
spurningar um áhættuþætti og áhættuhegðun. Svarmöguleikar á
skimunartækinu voru settir fram þannig að auðvelt væri fyrir skólahjúkrunarfræðing
í klínísku starfi að lesa úr því.
Ályktanir: Skimunartækið byggist á gagnreyndri þekkingu. Ekkert
skimunartæki fannst sem bæði metur áhættuþætti og áhættuhegðun
en jafnframt verndandi þætti. Þegar hEiLung var útbúið var ekkert
slíkt skimunartæki í notkun meðal skólahjúkrunarfræðinga sem
störfuðu í framhaldsskólum hér á landi. Eins og önnur skimunartæki
þá er hEiLung ætlað að gefa grófa mynd af viðfangsefninu, í þessu
tilfelli heilbrigði ungs fólks. næsta skref er að forprófa skimunartækið
við klínískar aðstæður.Purpose:When young people start high-school they are more likely
to behave in a risky manner, such as using alcohol, than younger
people. The purpose of developing this screening tool is to holistically
assess young people’s health and underlying risk factors, risk
behavior and protective factors. it is developed for school nurses
in the high-schools.
Method: The development of the screening tool hEiLung was
based on the theory of resilience, literature review of studies about
the health of young people and by examining measurements and
screening tools used for assessing the health of young people (risk
factors, risk behavior and protective factors). During the developmental
stage four specialists evaluated the questions and the questions
were also administered to six young people.
Results:When the developement of the screening tool HEILUNG
was at its final stage it consisted of 34 questions. The questions were
about physical, mental, social, sexual and lifestyle health issues and
gave a holistic view of health. it takes 2-4 minutues to administer.
The questions were arranged in that way that the first questions
were about protective factors followed by questions about risk factors
and risk behavior. The test items were arranged to make it easy
for school nurses in their clinical work to analyse the results.
Conclusions: The screening tool hEiLung is evidence based.
When it was developed no such screening tool was found which
focused both on risk factors, risk behavior and protective factors.
no such tool was in use by school nurses within the high-schools
in iceland. hEiLung is identical to other screening tools meant
to give a course picture of the matter under investigation, in this
case the health of young people. The next step is to do a pilot test
of the screening tool within a clinical setting