Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/Open Allur texti - Full textOn average, cerebral volume decreases and cognitive functions decline with increasing age. However, the role of age in cognitive decline is possibly overstated. The number of individuals who reach old age demonstrating little or no decline in cognitive functions indicates that decline associated with age is by no means inevitable. Geriatric research suggests that environmental factors have more effect than genotype on life expectancy and health in old age. Evidence is accumulating revealing many risk factors for cardiovascular disease to be involved in Alzheimer‘s disease as well. In this article the effects of these risk factors on the brain, cognitive skills and Alzheimer‘s disease will be discussed. The proportion of people reaching old age will grow substantially in coming decades, increasing the significance of prevention aimed at reducing the incidence of age-related diseases.Að meðaltali minnkar rúmmál heila með vaxandi aldri og vitrænni færni hnignar. Líklegt þykir að áhrif aldurs á vitræna færni séu þó ofmetin í rannsóknum. Fjöldi einstaklinga sem nær háum aldri án þess að vitræn færni þeirra láti undan síga að nokkru marki sýnir að hnignun er engan veginn óhjákvæmileg. Rannsóknir benda til að umhverfisþættir hafi mun meiri áhrif en arfgerð á ævilengd og heilsu fólks á efri árum. Sífellt fleiri rannsóknir gefa til kynna að margir áhættuþættir fyrir hjarta- og æðasjúkdóma komi við sögu í Alzheimerssjúkdómi. Verður í þessari grein fjallað um nokkra þessara áhættuþátta og hvað rannsóknir segja um áhrif þeirra á heila, vitræna færni og Alzheimerssjúkdóm. Fyrirséð er að hlutfall eldri borgara af heildarmannfjölda muni aukast umtalsvert á næstu áratugum, því verður mikilvægi forvarna sem miða að því að minnka tíðni aldursbundinna sjúkdóma varla ofmetið