research

Mat á alvarleika persónuleikavandamála : athugun á spurningalistanum Severity Indices of Personality Problems (SIPP) í úrtaki íslenskra háskólanema

Abstract

Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/OpenSpurningalistinn Severity Indices of Personality Problems eða SIPP er nýr spurningalisti sem metur alvarleika vandamála sem oft tengjast persónuleikaröskunum. Listinn er til í tveimur útgáfum og inniheldur önnur 118 atriði (SIPP- 118) sem skiptast á alls 16 undirþætti sem tilheyra fimm yfirþáttum. Hin útgáfan er styttri og inniheldur 60 atriði (SIPP-60) sem notuð eru til að reikna út skor þátttakenda á yfirþáttunum fimm. Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna próffræðilega eiginleika íslenskrar þýðingar á SIPP listunum í úrtaki 634 háskólanema. Niðurstöður sýndu að áreiðanleiki 13 af 16 undirþáttum SIPP-118 var ásættanlegur eða góður ( 0,70). Í leitandi þátttagreiningu voru þrír af fimm þáttum sambærilegir við niðurstöður erlendrar rannsóknar á SIPP-118. Skor á yfirþáttum SIPP-60 höfðu miðlungs til sterka fylgni við skor á spurningalista um lífsánægju þannig að meiri alvarleiki persónuleikavanamála tengdist minni lífsánægju. Marktækur munur var á meðaltölum á öllum yfirþáttum SIPP-60 milli hópa sem höfðu lág, miðlungs eða há skor á skimunarlista fyrir persónuleikaraskanir. Fyrstu niðurstöður á íslenskri þýðingu SIPP spurningalistans benda til að próffræðilegir eiginleikar listans séu góðir en kanna þarf betur þátttabyggingu listans. Áframhaldandi rannsóknir ættu einnig að beinast að notagildi listans við greiningu og mat á árangri meðferðar við persónuleikaröskunum

    Similar works