Case of the month: facial subcutaneous emphysema [case reports]

Abstract

Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Skoða/Opna(view/open)91 árs áður hraustur karlmaður leitaði á heilsugæslu utan höfuðborgarsvæðisins vegna fjögurra daga sögu um vaxandi mæði og þrota í andliti. Hann tók engin lyf að staðaldri og hafði ekki þekkt ofnæmi. Nokkrum dögum áður hafði hann hlotið áverka á vinstri síðu við fall. Við skoðun var öndun hröð og andlit greinilega þrútið (mynd 1). Vegna gruns um ofnæmislost var manninum gefið adrenalín og bólgueyðandi sterar í æð. Honum versnaði enn frekar eftir lyfjagjöfina og var því fluttur með sjúkrabíl á Landspítala þar sem gerðar voru frekari rannsóknir, meðal annars myndrannsóknir af lungum (mynd 2). Hver er greiningin, helstu mismunagreiningar og meðferð

    Similar works