Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/OpenÍ nútímaþjóðfélögum er astmi víðtækt og vaxandi vandamál. Úkraínski læknirinn, prófessor Pavlovich Buteyko, vann að umfangsmiklum lífefnafræðirannsóknum á 40 ára tímabili í Novosibirsk, Síberíu. Hann þróaði aðferð til að vinna meðal annars gegn astma með mjög góðum árangri. Í Rússlandi voru þessar kenningar viðurkenndar árið 1985. Á síðustu árum hefur aðferðin vakið vaxandi athygli og náð útbreiðslu á vesturlöndum, m.a. í Ástralíu, Nýja Sjálandi, Bretlandi, Hollandi, Úkraínu, Ísrael og Norður-Ameríku. Breska heilbrigðiskerfið hefur birt kenningar Buteykos í viðmiðunarreglum sem gefnar eru út um meðferð fyrir astmasjúklinga árið 2008 (British guideline on the management of asthma). Siðan árið 2007 hefur heilbrigðisráðuneytið í Ástralía skráð Buteykomeðferðin í AHP (Allied Health Professionals). Ástæðan fyrir þessari útbreiðslu er einkum góð reynsla af aðferðinni og niðurstöður vísindarannsókna sem birtar hafa verið í vestrænum ritrýndum fagtímaritum.1-5 benda einnig til að notkun aðferðarinnar minnki verulega þörf astmasjúklinga bæði fyrir berkjuvíkkandi lyf og steralyf.2-6 Aðferð Buteykos kemur mörgum spánskt fyrir sjónir í fyrstu en hún byggir á því að djúp öndun geti verið skaðleg. Markmið þessarar greinar er að kynna aðferð Buteykos og kenningar hans um hvernig öndun hefur áhrif á framvindu astma