Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/OpenKynlíf er ein af grunnþörfum mannsins. Kynlíf er einskonar samheiti yfir þörf okkar fyrir nálægð við aðra einstaklinga, samskipti, langanir, þarfir, tilfinningar og viðhorf. (Jóna Ingibjörg, 1988, Gunnhildur, 2001). Í kynlífi speglast þjóðerni okkar, félagsleg og tilfinningaleg gildi auk persónulegri einkenna (Couldrick, 1998). Kynhvötin er til staðar í mismunandi magni í gegnum allt lífið án tillits til aldurs, kyns, heilsu eða stöðu í þjóðfélaginu og er mikilvægur hluti sjálfsmyndar okkar, hvort sem við lifum í samræmi við hana eða ekki. Flestir sjúkdómar og sennilega flestar meðferðar hafa áhrif á kynhvöt manna. Hinn sjúki missir jafnvel alla löngun í kynlíf og hættir smám saman að lifa því, áhrifin geta verið að par fjarlægist hvort annað og þar með geta nálægð, blíða og einlægni horfið úr sambandinu. Þetta gerist oft á sama tíma og hinn sjúki þarf mest á nærveru ástvinar að halda (Romedal og Castle, 2002)