Efst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinnÆxli í hóstarkirtli eru yfirleitt góðkynja og staðsett í framanverðu miðmæti. Hér er lýst afar sjaldgæfu risaæxli í hægra brjóstholi sem reyndist vaxið út frá hóstarkirtli. Æxlið sem mældist 15 x 8 cm reyndist hóstarkirtilsæxli (thymoma) af gerð AB og tókst að fjarlægja það með skurðaðgerð. Tveimur árum eftir aðgerð er sjúklingur einkennalaus og án merkja um endurkomu sjúkdóms. Inngangur Hóstarkirtilsæxli eru misleitur hópur æxla með fjölbreytileg einkenni og horfur. Þau eru sjaldgæf en engu að síður algengustu æxli upprunnin í miðmæti.1 Í íslenskri rannsókn var aldursstaðlað nýgengi 0,28/100.000 íbúa og reyndist svipað fyrir bæði kyn.2 Meðalstærð hóstarkirtilsæxla í þeirri rannsókn var 6,5 cm og var stærsta æxlið 9,5 cm.2Risaæxlum í hóstarkirtli hefur verið lýst í erlendum rannsóknum3 og hér er slíku tilfelli lýst í fyrsta skipti á Íslandi.Thymomas are usually benign tumors and are most often found in the anterior mediastinum. We report a rare case of a giant tumor in the right hemithorax that originated in the thymus. The tumor was 15x8 cm and histology revealed a type AB thymoma. The tumor was removed and the patient is doing well and is without symptoms two years after the operation. Key words: Thymoma, abdominal pain, giant tumor, mediastinum