5 research outputs found

    Öldrunargeðlækningar

    Get PDF
    Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/OpenGreinin er stutt yfirlit yfir aðdraganda þess að öldrunargeðlækningar urðu sérgrein innan geðlæknisfræðinnar. Einnig er lýst hlutverki og verkefnum öldrunargeðlækna. Þekkingu þeirri sem liggur að baki sérgreinarinnar er stuttlega lýst

    Nokkrar staðreyndir um þunglyndi hjá öldruðum

    Get PDF
    Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/OpenMargt hefur verið rætt og ritað um þunglyndi á undanförnum árum. Efnið er orðið nokkuð vinsælt í fjölmiðlum, fólk kemur í sjónvarpið og segir lífsreynslusögur sínar og blöð og tímarit fjalla oft um þetta efni. Á veggjum heilbrigðisstofnana má sjá spjöld þar sem athygli gesta og gangandi er vakin á sjúkdómnum. Á þessum spjöldum eru gjarnan litmyndir af fólki með mikinn angistarsvip eða hamingjusvip og áletranirnar með stríðsfréttaletri. Í jólabókaflóði undanfarinna ára má finna bækur sem að meira eða minna leyti eru helgaðar þessum sjúkdómi. Það er því ekki að undra þótt hinn almenni borgari sé orðinn all vel heima í greiningu og eðli þessa sjúkdóms og er það vel. Við þessa miklu umræðu virðist hugtakið „þunglyndi“ vera orðið eilítið óskýrara en það var og orðið virðist að einhverju leyti vera að fá viðbótarmerkingu sem er nær því sem hingað til hefur verið kallað „lífsleiði“ og núorðið heyrist orðið „þunglyndi“ einstaka sinnum notað sem lýsingarorð og nær þá yfir eitthvað sem er leiðinlegt eða óheppilegt. Undanfarin 10-15 ár hefur sjúkdómurinn verið rannsakaður í vaxandi mæli. Fjöldi útgefinna greina um þunglyndi aldraðra á ári hefur sexfaldast á undanförnum 20 árum, á árinu 1984 voru þær rúmlega 50, en árið 2002 voru yfir 300 greinar um þunglyndi aldraðra birtar. Það er þess vegna hægt að slá því föstu að þekking á þunglyndi aldraðs fólks hefur aukist mikið á síðustu árum. Í þessari grein verður reynt að taka saman helstu atriði um þunglyndi aldraðra sem sannprófuð hafa verið með rannsóknum á sjúkdómnum. Hér er um að ræða niðurstöður rannsókna sem að bestu manna yfirsýn eru mjög áreiðanlegar, þ. e. a. s. rannsóknaraðferðin stenst ströngustu kröfur og niðurstöður staðfestar af fleiri en einni slíkri rannsókn

    Forvarnir geðsjúkdóma aldraðra

    No full text
    Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Skoða/Opna(view/open)Betra er heilt en vel gróið segir gamalt máltæki og minnir á að mönnum hefur lengi verið ljóst mikilvægi forvarna. Til þess að geta beitt forvörnum verður að þekkja hætturnar og kunna skil á orsökum þeirra. Þegar öldrunargeðlækningar tóku að ryðja sér til rúms fyrir 20-30 árum síðan varð ljóst að betur mátti gera á þessu sviði, sem fram að því hafði verið vanrækt. Í kjölfar þess að vekja athygli á sérstöðu geðsjúkdóma aldraðs folks var farið að rannsaka eðli þeirra. Upplýsingar sem fengist hafa með þessum rannsóknum hafa síðan verið nýttar til að koma af stað, eða a. m. k. tala um forvarnir á þessu sviði. Þannig má segja að góðar og hvetjandi aðstæður til rannsókna á geðsjúkdómum aldraðra sé ein af grundvallarforvörnum á þessu sviði. Tveir algengustu sjúkdómar ellinnar eru heilabilun og þunglyndi. Mikilvægar upplýsingar sem að gagni gætu komið til forvarna liggja nú fyrir. Verður nú fjallað stuttlega um forvarnir þessara tveggja sjúkdóma. Enfremur verður minnst forvarnargildi þess að vera virkur þjóðfélagsþegn án tillits til aldurs

    Har vi bruk for alderspsykiatrien?

    No full text
    corecore