3 research outputs found

    Lifrarbólga af völdum Epstein-Barr- og cytomegaloveira

    No full text
    Inngangur: Flestar lifrarbólgur af völdum veira orsakast af lifrarbólguveirunum A, B og C. Aðrar veirur geta þó valdið lifrarbólgu s.s. Epstein-Barr og cytomegaloveirur en mun minna er þekkt um afdrif þeirra. Ekki eru til nýlegar né yfirgripsmiklar faraldsfræðilegar rannsóknir byggðar á lýðgrunduðu þýði um lifrarbólgur af þessu tagi. Tilgangur rannsóknarinnar er að kanna hversu oft þessar veirur þ.e.a.s. EBV og CMV valda lifrarbólgum hér á landi, hversu margir fá gulu og hvernig sjúklingunum reiðir af. Efni og aðferðir: Rannsóknin var aftursýn og náði yfir tæplega 10 ára tímabil, frá mars 2006 til lok árs 2015. Tekinn var saman listi yfir öll tilfelli úr gagnagrunni Veirufræðideildar Landspítalans þar sem um var að ræða bráða sýkingu af EBV eða CMV. Þ.e.a.s. listi af sjúklingum með jákvæð IgM mótefni. Einstaklingum af ofangreindum lista var flétt upp í tölvukerfi LSH og viðeigandi klínískar upplýsingar skráðar hjá öllum þeim einstaklingum sem voru með hækkuð gildi lifrarensíma í blóði. Niðurstöður: Alls voru 190 einstaklingar sem greindust með bráða EBV sýkingu og voru með skráðar klínískar upplýsingar í tölvukerfi LSH. Af þeim voru 156 (82%) með hækkuð lifrarpróf og miðgildi aldurs 17 ár. Miðgildi ALP var 214 U/L, ASAT 137 U/L, ALAT 187 U/L og bilirúbín 28 µmól/L. Af þeim sem fengu lifrarbólgu reyndust 24 (15%) vera með gulu og voru þeir einstaklingar marktækt eldri en þeir sjúklingar sem fengu ekki gulu. Næstum helmingur af sjúklingum með gulu 11/24 (46%) voru lagðir inn vegna veikinda sinna, enginn þeirra var ónæmisbældur né fékk veiruhemjandi lyf gegn sýkingunni. Í öllum tilfellum gekk lifrarbólgan yfir án meðhöndlunar og frekari fylgikvilla. Af CMV listanum voru 118 einstaklingar með bráða CMV sýkingu og skráðar klínískar upplýsingar. Af þeim voru 81 (69%) með hækkuð lifrarpróf og miðgildi aldurs 33 ár. Miðgildi ALP var 120 U/L, ASAT 106, ALAT 148 og bilirúbín 12 µmól/L. Aðeins 7 (9%) einstaklingar þeirra með hækkuð lifrarpróf reyndust vera með gulu vegna CMV sýkingar. Allir nema einn þeirra voru lagðir inn, 3 voru meðhöndlaðir með Gancyclovir og einn lést vegna veikinda sinna. Af öllum þeim sem fengu hækkuð lifrarpróf sökum CMV voru 14 (17%) ónæmisbældir, 32 (40%) lagðir inn, 14 (17%) fengu veiruhemjandi lyf, 5 þungaðar konur voru í hópnum og 3 Guillain-Barré heilkenni voru greind í kjölfar CMV sýkingar. Ályktanir: Hátt hlutfall þeirra sem leita sér læknishjálpar á LSH vegna EBV og CMV eru með hækkuð lifrarpróf. Sjúklingar með CMV lifrarbólgu eru eldri, fremur lagðir inn á sjúkrahús og líklegri til að vera ónæmisbældir en sjúklingar með EBV lifrarbólgu. Umtalsverður hluti sjúklinga með EBV og CMV lifrarbólgu hefur gulu en hafa góðar horfur, ónæmisbældir sjúklingar með CMV geta þurft veiruhemjandi lyfjameðferð

    Hepatitis due to Epstein-Barr virus and cytomegalovirus: clinical features and outcomes.

    No full text
    To access publisher's full text version of this article click on the hyperlink belowTo determine the frequency of cytomegalovirus (CMV) and Epstein-Barr virus (EBV) hepatitis among those with acute CMV and EBV infection in a population based setting and to compare these two types of hepatitis and analyze the outcomes.A retrospective search was undertaken on all patients with IgM antibodies to CMV and EBV during the period of 2006-2015 in the virological database of the University Hospital of Iceland covering the metropolitan area of Reykjavík (population 202,255). Patients with available liver tests at the University Hospital and/or admitted to this institution were included and relevant clinical data obtained from medical records.Overall, 190 patients had acute EBV infection during the study period and 118 patients were diagnosed with acute CMV. Overall, 82% of patients with acute EBV infection had hepatitis, males 43%, median age 17 years, 15% had jaundice and 26% hospitalized. Among those with acute CMV infection, 69% had elevated liver tests, 63% males, median age 33 years, 9% had jaundice and also 26% hospitalized. Overall, 17% of those with CMV hepatitis were immunosuppressed, 6% were pregnant and 4% developed Guillain-Barré syndrome following the infection.A high proportion of patients with acute CMV and EBV developed hepatitis and jaundice, most of those patients have good prognosis. Patients with CMV hepatitis were more often immunosuppressed, required hospitalization or were pregnant in comparison with patients with EBV hepatitis
    corecore