To access publisher's full text version of this article, please click on the hyperlink in Additional Links field or click on the hyperlink at the top of the page marked DownloadINNGANGUR
Formleg erfðaráðgjafareining hefur verið starfrækt á Landspítala
við Hringbraut frá árinu 2006. Samhliða hefur áhugi og þörf á
erfðalæknisfræði í almennri heilbrigðisþjónustu aukist til muna. Í
þessari grein er starfsemi og útkoma erfðarannsókna hjá erfða- og
sameindalæknisfræðideild Landspítala á 5 ára tímabili (2012-2017) tekin
saman. Sérstaklega var horft til fjölda einstaklinga, ástæðu komu, ástæðu
erfðarannsókna án aðkomu erfðaráðgjafar Landspítala og eins var nýtni
(heildarhlutfall rannsókna sem skila jákvæðri niðurstöðu) erfðarannsókna
skoðuð.
AÐFERÐIR
Gögn um komur voru fengin upp úr sjúkraskrárkerfi erfðaráðgjafar, Shire
og Sögu/Heilsugátt.
NIÐURSTAÐA
Fjöldi þeirra sem sóttu þjónustu erfðaráðgjafareiningarinnar
jókst árlega allt tímabilið. Ástæður fyrir erfðaráðgjöf reyndust
vera krabbameinstengdar í tveimur þriðju hlutum tilfella. Aðrir
komu vegna fjölskyldulægra sjúkdóma sem eru algengir á Íslandi,
ýmist sjúkdóma sem erfast ríkjandi (dæmi: vöðvaspennuvisnun og
ofvaxtarhjartavöðvasjúkdómur) eða vegna víkjandi sjúkdóma (dæmi:
mænuvöðvarýrnun og GM1-ganglio-síðkvilli). Algengast var að fólk
færi í erfðarannsókn án aðkomu erfðaráðgjafar Landspítala vegna
meðhöndlanlegra sjúkdóma, svo sem arfgengrar járnofhleðslu og
bláæðasegatilhneigingar. Nýtni erfðarannsókna var metin fyrir a)
leit að þekktum meinvaldandi breytingum, b) leit að meinvaldandi
breytingum í stökum genum (eingenarannsóknir), c) fjölgenarannsóknir
og d) tákn- og heilerfðamengisrannsóknir. Leit að þekktri breytingu
skilaði jákvæðri niðurstöðu í 33% tilvika og leit í stöku geni í 46%
tilvika. Nýtni fjölgenarannsókna vegna krabbameina var lægri (20%)
samanborið við aðrar fjölgenarannsóknir (40%). Þá var nýtni tákn- og
heilerfðamengisrannsókna 46%.INTRODUCTION: A genetic counselling unit at Landspitali hospital (LSH) was established
in 2006. Meanwhile, genetic testing has become an integral part of general health care.
In this article we detail the outcome of genetic testing at the Department of Genetic and
Molecular Medicine (DGM) at Landspitali over a five year period (2012-2017). Factors that
were analyzed for the time period were: Number of patients, reason for referral, reason
for genetic testing without genetic counselling and yield (proportion of positive tests) of
genetic testing.
METHODS: Data was analysed from two medical record databases, Shire and Saga, used
by the DGM in the time period.
RESULTS: The number of individuals coming for genetic counselling increased every year
over the time period. Reasons for referral were cancer-related in two-thirds of cases.
Other reasons for referral included various other familial disorders. Most common were
autosomal dominant disorders like myotonic dystrophy, hypertrophic cardiomyopathy
and autosomal recessive disorders like spinal muscular atrophy (SMA) and GM1-
gangliosidosis. Most common reasons for genetic testing outside of the LSH GC unit was
because of managable diseases like hemochromatosis and F5/Prothrombin-related
thrombophilia. Yield of genetic testing was assessed for a) known mutation testing /
carrier testing, b) single gene testing, c) gene panel testing and d) whole genome and
whole exome sequencing. Known mutation testing was positive in 33% of cases and single
gene testing in 46% of cases. The yield of gene panel testing for cancer was found to be
lower (20%) than gene panel testing for other disorders (40%). The yield of whole exome
and whole genome sequencing was 46%
Is data on this page outdated, violates copyrights or anything else? Report the problem now and we will take corresponding actions after reviewing your request.