2 research outputs found

    Lesið í dýrabein. Heimagerð áhöld úr Skriðuklaustursuppgrefti

    No full text
    Hér á eftir verður fjallað um unnin dýrabein sem fundist hafa við Skriðuklaustursuppgröftinn. Fjallað verður um mögulega nýtingu beinanna og einnig hvað staðsetning þeirra getur sagt um notkunina. Í fyrstu verður fjallað um dýrabeinafornleifafræði í grófum dráttum og þróun hennar. Því næst er farið í sögu Skriðuklausturs í stuttu máli og uppgröftinn sjálfan. Eftir það er farið í meginefni ritgerðarinnar en það eru þau unnu dýrabein sem hafa fundist þar. Hver beintegund fær sinn kafla sem eru í senn flokkaðir í undirkafla eftir því hvort um er að ræða verkfæri, húsgagn eða grip til dægrastyttingar. Þau unnu bein sem mest hefur fundist af og hafa nokkuð augljós merki um verkun eru tekin fyrir í ritgerðinni. Þau bein sem lögð er áhersla á eru leggir úr sauðfé, herðablöð og höfuðkúpur úr stórgripum, auk fisk- og fuglsbeina

    CESAR - Stundatöflugerðar kerfi fyrir HR

    No full text
    Verkefnið fólst í að betrumbæta kerfi Háskólans í Reykjavík þegar kemur að gerð stundatafla fyrir kennara og nemendur skólans. Fundinn var stundatöflugerðar hugbúnaður frá þriðja aðila sem sér um gerð stundatafla en forritaður var milliliður, sem fékk nafnið CESAR, sem sér um að nálgast nauðsynleg gögn fyrir stundatöflugerð og koma þeim á það form sem stundatöflugerðar hugbúnaður getur tekið við. Einnig sér CESAR um að taka við tilbúnni stundatöflu frá hugbúnaði á formi xml skráar og bókar stofur á gagnagrunn skólans sem sóst er eftir í stundatöflunni. Markmið verkefnisins var að finna leið til að auðvelda gerð stundatafla fyrir starfsfólk skólans. Gera viðbætur á kerfum skólans sem mundu að miklu leyti vélvæða stundatöflugerð. Fyrsta skref var að ákveða hvaða leið yrði farin til að framkvæma þessar viðbætur. Tvennt var í boði, annars vegar að hefjast handa við að forrita kerfi frá grunni sem mundi sjá um gerð stundatafla fyrir skólann. Hinsvegar að finna hugbúnað frá þriðja aðila sem mundi sjá um gerð stundataflanna og forritaður yrði milliliður (þáttari) sem sæi um að sækja nauðsynleg gögn frá gagnagrunni skólans og setja þau á það form sem stundatöflugerðar hugbúnaður þyrfti. Seinni kosturinn varð fyrir valinu þar sem talið var að sá fyrri væri full stórt verkefni fyrir tvo og yrði einungis upphaf af stóru framtíðar verkefni sem aðrir nemendur gætu tekið við og haldið áfram með. Aftur á móti er fyrri kosturinn verkefni sem vert væri fyrir skólann að skoða
    corecore